Hera leikur aðalhlutverkið í bandarísku kvikmyndinni The Ottoman Lieutenant sem kemur út á næsta ári. Hún var mjög hrædd við hlutverkið í byrjun og spáði í að taka það ekki


Download 39.7 Kb.
Pdf ko'rish
Sana24.11.2017
Hajmi39.7 Kb.
#20782

Fréttatíminn, 09.09.2016, síðu 4

grein stærð: 891.43 sm2

grein hæð: 38.29 sm

Í ástarþríhyrningi með Josh Hartnett

Í ástarþríhyrningi með Josh Hartnett

Hera

 leikur aðalhlutverkið í bandarísku kvikmyndinni The Ottoman Lieutenant sem kemur út á næsta ári. Hún var mjög 

hrædd við hlutverkið í byrjun og spáði í að taka það ekki. Hún óttaðist að standa sig ekki nógu vel á móti þekktum 

 leikurum og var með komplexa yfir hreimnum sínum.



Sólrún Lilja Ragnarsdóttir

solrunlilja@amk.is

H

solrunlilja@amk.is



H

era Hilmars dóttir 

leikkona er stödd á 

Íslandi um þessar 

mundir, en hún var 

í vikunni viðstödd 

frumsýningu á kvikmyndinni 

Eiðurinn, þar sem hún fer með eitt 

aðalhlutverka. Almennar sýningar 

á myndinni hefjast í kvöld. Hera 

fer með hlutverk ungrar stúlku, 

Önnu Finnsdóttur, sem leiðist út 

í fíkniefnaneyslu og tekur saman 

við þekktan dópsala. Þegar hún 

kynnir nýja kærastann fyrir fjöl-

skyldunni ákveður faðir hennar, 

sem leikinn er af Baltasar Kor-

máki, að taka málin í sínar hendur 

og koma henni á réttan kjöl.

Lærði allt um dóp

Hera þurfti að setja sig í ákveðn-

Hera þurfti að setja sig í ákveðn-

ar stellingar fyrir hlutverkið og 

leita nýrra leiða til að framkalla 

réttar tilfinningar. „Ég tengi við 

 persónuna á mannlegan hátt en 

hef sjálf ekki verið í fíkniefna-

neyslu eða upplifað það að vera 

háð einhverju svo mikið að það 

taki algjörlega yfir líf mitt á þann 

hátt sem fíknin hefur gert hjá 

Önnu. Ég þurfti virkilega að kynna 

mér áhrif allrar fíkniefnaneyslu og 

öll mismunandi stig hennar fyrir 

hlutverkið; þekkja einstök áhrif 

ákveðinna efna, bæði líkamleg og 

andleg. Og vita nákvæmlega hvar 

Anna var stödd í neyslunni hverju 

sinni, á hvaða efnum og hvar 

í  vítahringnum.“

Fær stundum maníur

Hera segist þó eiga það til að verða 



Fær stundum maníur

Hera segist þó eiga það til að verða 

háð vinnunni sinni. „Ég hef rosa-

lega gaman af því sem ég geri og 

þarf stundum að stoppa mig af í 

vinnu. Ég held að það sé til dæmis 

ekki auðvelt að búa með mér, eða 

vera mikið í kringum mig þegar 

ég er djúpt sokkin í verkefni, en 

ég er meðvituð um þetta. Maður 

er auðvitað alltaf að læra meira 

og meira að lifa í einhverju jafn-

vægi og vita hvar línan liggur. Ég 

get samt dottið í ákveðnar vægar 

maníur og þráhyggju, en ég myndi 

segja að það væri bara ákveðið 

karaktereinkenni. Þær geta þá 

bæði tengst vinnu, eins og hlutum 

sem ég tel mig þurfa að gera fyrir 

hlutverk, en líka bara svona fá-

ránlegum hlutum eins og að telja 

hvað það komast margir bílar á 

milli ljósastaura þegar ég er í bíl 

á ferð eða framkvæma ákveðna 

seremóníu sem enginn sér nema 

ég þegar góðar kvikmyndir enda. 

En þegar kemur að vinnunni þá 

held ég reyndar að það sé erfitt að 

vera leikari án þess að vera með 

ákveðna þráhyggju fyrir því sem 

maður er að gera. Annars væri 

maður ekki að þessu.“

Hera er dóttir Þóreyjar Sigþórs-

dóttur leikkonu og Hilmars Odds-

sonar leikstjóra og hefur því lifað 

og hrærst í leiklistinni alla ævi. 

Hún ætlaði sér alltaf að verða leik-

kona þó foreldrar hennar væru 

ekkert sérstaklega hrifnir af þeirri 

hugmynd í upphafi. „Það var ekki 

alltaf pössun og ég var því oft með 

þeim í einhverju leiklistartengdu. 

Mér fannst það mjög skemmtilegt. 

Þau voru samt dugleg að benda 

mér á að ég gæti algjörlega líka 

gert eitthvað annað. En ég held að 

það hafi bara gert mig enn spennt-

ari fyrir leiklistinni. Af hverju ætti 

ég ekki að mega gera það sem þau 

voru að gera, fyrst það var svona 

skemmtilegt? Þannig að fyrst 

þegar ég fór að leika sjálf var ég 

svolítið að reyna að sanna mig fyr-

ir þeim, eins og svo margir krakk-

ar fyrir foreldrum sínum. Og það 

tókst bara, held ég. Þau eru miklir 

stuðningsmenn í dag.“

Ætlaði alltaf að vera heima

Hera bjó í eitt ár í London á aldr-



Ætlaði alltaf að vera heima

Hera bjó í eitt ár í London á aldr-

inum 8 til 9 ára, á meðan móðir 

hennar var í námi þar í borg. Hún 

heillaðist strax af London og dvöl-

in þar hafði mikil áhrif á hana. 

„Ég bjó í Austur-London sem var 

þá enn hrárra og blandaðra hverfi 

en það er núna. Ég enduruppgöt-

vaði algjörlega sjálfa mig þarna 

og kynnist krökkum af allskonar 

þjóðernum. Ég óx mjög hratt upp 

líkamlega sem barn og var ótrú-

lega hávaxin á þessum tíma. Ég 

upplifði mig allt öðruvísi en allir 

í kringum mig. Mér fannst það 

mjög merkilegt. Það var svolítið 

eins og ég færi í annað hlutverk en 

á  Íslandi.“

Hera flutti svo aftur til London 

þegar hún var 19 ára, eftir að hafa 

lokið stúdentsprófi frá Mennta-

skólanum í Hamrahlíð. Og þá til 

að læra leiklist. „Ég ákvað að fara 

til London því ég fann að það var 

einhver taug sem togaði í mig. 

Draumurinn var alltaf að læra 

heima og vera heima, en allt í einu 

fannst mér það of nálægt mér og 

hugmyndin að fara út ógnvæn-

legri á góðan hátt,“ segir Hera sem 

var þá búin að leika í nokkrum ís-

lenskum kvikmyndum, sjónvarps-

þáttum og stuttmyndum. Þar á 

meðal kvikmyndinni Veðramót-

um sem vakti mikla athygli. „Samt 

sá ég ekki fyrir mér að ég væri að 

fara að vinna úti beint eftir skóla, 

allavega ekki eftir augljósum leið-

um. Ég var í rauninni ekki með 

neitt plan. Ég ætlaði bara í skól-

ann, byrja þar, og svo var ég allt í 

einu komin með starf,“ segir Hera 

sem hefur búsett í London síðan, 

en hún er 27 ára í dag.

Hún var enn í námi þegar hún 

fékk fyrsta hlutverkið sitt úti og 

þá fór boltinn strax að rúlla. Í kjöl-

farið landaði hún meðal annars 

hlutverki í sjónvarpsþáttunum 

Da Vinci’s Demons, sem varð að 

þremur þáttaröðum. „Þetta voru 

þrjú ár, sem var svolítið mikill 

pakki. Það var mjög gaman og ég 

lærði rosalega mikið.“

Það var samt ekki fyrr en Hera 

og umboðsmaðurinn hennar 

skiptu um umboðsskrifstofu að 

hún fór sjálf að hafa meira um það 

að segja hvaða verkefni hún tæki. 

„Þá losnaði um einhverja orku og 

ég ákvað að fara til Los Angeles í 

tvær vikur. Hugmyndin var að fara 

í frí og taka mögulega einhverja 

fundi og ég endaði á því að ráða 

þar tvo „managera“ sem ég unnið 

með síðan.“

Hollywood ógnvekjandi

Hollywood ógnvekjandi

Verkefnin byrjuðu fljótlega að 

hrúgast inn og frá því í fyrravor 

hefur Hera nánast unnið sleitu-

laust. Hún hefur landað hverju 

hlutverkinu á fætur öðru og sum 

eru ansi stór. Má þar helst nefna 

aðalhlutverk í kvikmyndinni The 

Ottoman Lieutenant sem kemur 

út á næsta ári, þar sem hún leikur 

á móti ekki verri mönnum en Josh 

Harnett og Ben Kingsley, og stórt 

hlutverk í An Ordinary Man sem 

kom í kjölfarið. 

„The Ottoman Lieutenant var 

fyrsta leiðandi hlutverk mitt í 

amerískri mynd, þar sem ég leik 

Ameríkana. Ég held ég hafi aldrei 

verið jafn hrædd við neitt hlut-

verk áður. Ég pældi í alvörunni í 

því í örskotsstund hvort ég ætti 

að taka verkefnið. Hvort það væri 

kannski betra að stoppa áður en 

ég færi að standa mig illa. Ég var 

mjög hrædd um að ég yrði ekki 

nógu góð og það voru leikarar 

viðloðandi myndina sem ég hafði 

þekkt frá því ég var barn. Átti að 

vera manneskjan sem leiddi þessa 

mynd? Josh Hartnett leikur til 

dæmis á móti mér og þegar ég var 

krakki var hann gaurinn sem allir 

voru skotnir í. Ég vissi að hann 

átti að leika annan gaurinn í ást-

arþríhyrningi með mér. Var hann 

að fara að samþykkja það? Þar að 

auki var ég með komplexa gagn-

vart hreimnum því ég hafði aldrei 

leikið Ameríkana áður. Þetta var í 

rauninni hreinræktuð Hollywood-

mynd og það var ógnvekjandi. En 

svo fór ég og gerði þetta. Kláraði 

verkefnið og bara gat það.“ 

Er að hreinsa hausinn

Er að hreinsa hausinn

Þrátt fyrir að verkefnið væri virki-

lega skemmtilegt var það líka 

mjög krefjandi og erfitt. Mögu-

lega það erfiðasta sem hún hefur 

tekist á við. „Þá aðallega af því ég 

þurfti að takast á við hræðsluna 

í sjálfri mér. Tökurnar voru samt 

ansi strembnar líka. Ég held ég 

hafi aldrei unnið jafn mikið á ævi 

minni. Þetta voru fjórir mánuð-

ir og ég vann alla daga, þó svo 

við leikstjórinn yrðum fárveik í 

tvær vikur. Vinnudagurinn var að 

minnsta kosti 15 tímar, alla daga 

vikunnar, og þeir dagar sem áttu 

að vera frídagar fóru í strangar 

reiðæfingar og hreima-tíma. En ég 

gat þetta og núna finnst mér ekk-

ert mál að gera það sem hræddi 

mig svo mikið þarna fyrir ári.“

Út frá þeirri mynd fékk hún svo 

hlutverk í kvikmyndinni An Ord-

inary Man, þar sem hún leikur á 

móti Ben Kingsley enn á ný, en það 

var einmitt hann sem benti leik-

stjóranum, Brad Silberling, á hana 

eftir vinnu þeirra í The Ottoman 

Lieutenant. 

Eftir það lá leiðin til Indlands. 

„Ég var þar að leika í mjög merki-

legri mynd, aðallega þar sem þetta 

var fyrsta myndin sem var form-

lega unnin í fullkomnu samstarfi á 

milli Indlands og Hollywood. Við 

erum við að tala um tvo gjöró-

líka heima. Þetta var fyrsta mynd 

leikstjórans en hann er hálfur 

Ameríkani og Indverji, sem hjálp-

aði að brúa heimana. Það verður 

áhugavert að sjá hvað kemur út úr 

henni.“


Verkefnin síðasta árið hafa verið 

töluvert fleiri en hér eru upp-

talin, en nú er hún í smá fríi til að 

hreinsa á sér hausinn, eins og hún 

orðar það sjálf. „Maður brennur 

svo fljótt út ef maður keyrir sig 

endalaust áfram og það kemur 

niður á öllu sem maður gerir. Ég 

þarf líka að eiga líf og hafa tíma 

til að vinna úr hlutum í lífinu. Það 

hefur mikil áhrif á mann að vinna 

í mörgum verkefnum í mismun-

andi löndum á stuttum tíma. Það 

getur verið ansi lýjandi þó það sé 

líka gefandi. Svo er ég byrjuð að 

skoða nokkur verkefni sem gætu 

hafist seinna í haust og byrjun 

næsta árs.“



Skoðar ný verkefni  Hera er nú aðeins að hvíla sig eftir langa og erfiða vinnutörn. En hún er engu að síður farin að skoða ný verkefni sem 

gætu hafist síðar í haust. 



Mynd | Rut

Download 39.7 Kb.

Do'stlaringiz bilan baham:




Ma'lumotlar bazasi mualliflik huquqi bilan himoyalangan ©fayllar.org 2024
ma'muriyatiga murojaat qiling